ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Nýtt heimsmet: Dró strætisvagn á hárinu - Myndband

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:35 › 12. nóvember 2009
Sterkt hár. Singh setti heimsmet í að draga strætisvagn með hárinu.

Sterkt hár. Singh setti heimsmet í að draga strætisvagn með hárinu.

Indverjinn Manjit Singh, sem nú er breskur ríkisborgari, setti á dögunum nýtt og glæsilegt heimsmet þegar hann dró strætisvagn rúma tuttugu metra á hárinu. Singh, sem er 59 ára gamall, segir í samtali við Telegraph að hann hafi ekki hugmynd um af hverju hann er gæddur þessum óvenjulega hæfileika. „Ég nota bara venjulegt sjampó sem ég kaupi í næstu verslun.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Singh reynir að setja óvenjulegt heimsmet. Fyrir tveimur árum reyndi hann að draga jafnstóran strætisvagn á eyrunum en hafði þá ekki erindi sem erfiði. Hann ákvað því að reyna að draga hann á hárinu og það gekk eins og í sögu. Heimsmetstilraun Singhs var hluti af hátíð Heimsmetabókar Guinness sem haldin er árlega um allan heim. Sjón er sögu ríkari en myndbandið af Singh má sjá hér að neðan:




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?