Ragna hefur sett á fót vinnuhóp til að kanna hvaða möguleikar séu fyrir hendi til að efla eftirlit með útlendingum til að uppræta erlenda glæpastarfsemi. Mynd DV
Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, hefur sett á fót vinnuhóp til að kanna hvaða möguleikar séu fyrir hendi innan gildandi laga og alþjóðlegs samstarfs til að efla eftirlit með útlendingum og tryggja að verið sé að nýta þær heimildir sem til staðar eru til að uppræta skipulagða glæpastarfsemi hér á landi.
Í tilkynningu frá dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, kemur fram að þá sé bæði átt við þá útlendinga sem njóta réttar um frjálsa för samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þá sem ekki njóta þess réttar. Meðal annars verður skoðað hvort unnt sé að taka upp tímabundið vegabréfaeftirlit eða ókerfisbundið eftirlit bæði á landamærum og innan þeirra og er hópnum falið að koma með tillögur um úrbætur.
Í vinnuhópnum eiga sæti Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem jafnframt er formaður hans, Guðbrandur Guðbrandsson, lögreglufulltrúi hjá ríkislögreglustjóra, Þorsteinn Gunnarsson, forstöðumaður hjá Útlendingastofnun, Jóhann Karl Þórisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna