ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Tvíræður jólapappír: Hakakross eða fallegt skraut?

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:04 › 11. nóvember 2009
Jólapappírinn olli talsverðu fjaðrafoki.

Jólapappírinn olli talsverðu fjaðrafoki.

„Ég ákvað að kaupa pappírinn því mér fannst hann jólalegur. Svo áttaði ég mig á því hvaða merki var á honum og var virkilega brugðið,“ segir Casey Lehman. Lehman er aldeilis ekki sátt við jólapappír sem hún keypti í smávöruverslun í Flórída á dögunum.

Lehman ákvað að vera snemma á ferðinni í ár með að versla jólagjafir og að sjálfsögðu keypti hún fallegan flöskugrænan jólapappír með. En ánægjan með pappírinn var skamvinn þegar hún áttaði sig á því að þar var að finna hakakrossa á víð og dreif. „Ég spurði sjálfa mig hvort þetta væri virkilega hakakrossinn,“ segir Lehman sem ákvað að hringja í unnusta sinn og móðir til að vera alveg viss um að um hakakrossinn væri að ræða.

Verslunarstjóri verslunarinnar þar sem Lehman keypti pappírinn hafði ekki hugmynd um merkið þegar fjölmiðlar vestanhafs leituðu skýringar hjá honum. Sagði hann að pappírinn væri framleiddur í Kína og hann myndi kaupa hann frá umboðsaðilum í New York. Ákvað hann að taka pappírinn úr sölu og koma skilaboðunum á framfæri við umboðsaðila svo þeir gætu gripið til viðeigandi ráðstafana.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.