Tveir hafernir sáust á sveimi yfir Laxá í Hvalfjarðarsveit á sunnudag. Á vef Hvalfjarðarsveitar, rétt eins og á fréttavef Vísis, kemur fram að ábúendur á Stóra-Lambhaga hafi orðið vör við stakan haförn í síðustu viku. Honum hafi fylgt nokkrir forvitnir hrafnar.
Blaðamaður átti leið um Hvalfjarðarsveit á sunnudag. Lágt yfir Laxá, skammt norðan Stóra-Lambhaga, sveimuðu tveir ernir, að því er virtist í ætisleit. Ernirnir voru furðu spakir.
Í áðurnefndri frétt er hermt að ernir séu sjaldgæf sjón í Hvalfjarðarsveit. Í athugasemdakerfi við fréttina er hins vegar bent á að arnarpar hafi um nokkurra ára skeið haldið til í Melasveit.
Arnarstofninn á Íslandi telur um 65 fullorðin pör og hefur rúmlega þrefaldast frá því að bannað var að eitra fyrir tófu árið 1964. Aðalheimkynni arnarins eru við Breiðafjörð en þar halda nú til rúmlega 40 pör eða 2/3 hlutar stofnsins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna