ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Treysta ríkinu betur en bönkunum

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
07:37 › 11. nóvember 2009

Meirihluti landsmanna vill að stjórnvöld marki sjálf stefnuna um afskriftir skulda fyrirtækja og heimila. Um þriðjungur landsmanna vill að bankarnir móti stefnuna sjálfir samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Háskólinn á Bifröst hefur gert.

Ásta Dís Óladóttrir forseti viðskiptadeildar háskólans á Bifröst bendir á að í skýrslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum komi fram að afskrifa þurfi umtalsvert af skuldum á Íslandi líkt og í öðrum löndum. „Erlendur ráðgjafi sem var hér á landi á vegum ríkisins gerði úttekt á stöðu úrlausnarmála og taldi hann að vandræðagangur ríkisins og bankanna í að viðurkenna nauðsyn þess að afskrifa skuldir fyrirtækja og heimila gæti tafið endurreisn efnahagslífsins um þrjú til fimm ár.“

Ásta Dís segir nauðsynlegt fyrir bankana og stjórnvöld að afskrifa skuldir hjá fyrirtækjum og heimilum í landinu. Það hafi lítið upp á sig að búa til svokallaðan skuldaskafl sem engin leið verði að kljúfa á endanum. „Það verður að búa til einhvern hvata hjá fólki til að vinna sig út úr vandamálum sínum og að fólk sjái fram á að geta að lokum greitt sínar skuldir.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?