Geir Þorsteinsson formaður KSÍ. Forveri hans Eggert Magnússon setti mönnum skýrar reglur um hegðun í ferðum á vegum sambandsins.
Forsvarsmenn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, þurfa að gefa fullnægjandi skýringar á heimsókn fjármálastjórans Pálma Jónssonar á strippstað í Sviss fyrir fjórum árum. Stjórnarmaður KSÍ segir heimsóknir á nektardansstaði algengar í tengslum við ráðstefnur knattspyrnuhreyfinga.
Heimsóknir ráðstefnugesta á vegum knattspyrnuhreyfinga á nektardansstaði eru algengar og dæmi eru um að auglýsingabæklingar frá slíkum stöðum liggi á borðum á ráðstefnum sem haldnar eru. Þetta fullyrðir einn stjórnarmanna Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, í samtali við DV.
„Ég man vel eftir því, á ráðstefnu á vegum UEFA, að þar lágu svona bæklingar á öllum borðum, og jafnvel frá nokkrum svona strippbúllum. Þetta þykir ekkert tiltökumál hefur mér sýnst og virðist vera eitthvað sem tíðkast,“ segir stjórnarmaðurinn, sem vegna eðli málsins vill ekki láta nafns síns getið.
Nánar um málið í DV í dag




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir
Á fjórða tug skjálfta við Eldeyjarboða