Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
„Ég er búinn að vita af þessu í smátíma. Þetta eru náttúrlega sorgartímar fyrir okkur Lemon-menn,“ segir Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og einn helsti drykkjurútur Fanta Lemon á Íslandi. Fanta Lemon verður tekið úr sölu innan tíðar þrátt fyrir gríðarlegar vinsældir.
Þegar drykkurinn var endurfæddur hér á landi fékk Henry fullt skott af birgðum sem hann er nú búinn með. „Ég gaf nú mestallt til vina og ættingja. Breiddi út fagnaðarerindið um hvað þetta er óhemjugóður drykkur,“ segir Henry sem kveður nú Fanta í bili, sár og svekktur. Hann verður þó ekki Lemon-laus því hann keypti birgðir um daginn sem eiga að endast honum veturinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar