ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Rússnesk mannæta: Fékk vægari dóm því hann var svangur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:10 › 11. nóvember 2009
Samara í Rússlandi. Maðurinn fékk vægari dóm þar sem hann var svangur og átti ekkert að borða.

Samara í Rússlandi. Maðurinn fékk vægari dóm þar sem hann var svangur og átti ekkert að borða. Mynd Photos

Rússneskur karlmaður hefur dæmdur í fjórtán ára og þriggja mánaða fangelsi fyrir að myrða móður sína og leggja lík hennar sér til munns. Dómari í málinu hafði þó ansi sérkennilega sýn á málið og hlífði honum við lífstíðarfangelsi. Ástæðan var einföld. Hann mat það svo að morðinginn hefði verið svangur og þurft að borða.

Maðurinn, sem heitir Sergey Gavrilov og er 27 ára, sló móður sína í höfuðið með múrsteini með þeim afleiðingum að hún lést. Ástæðan var sú að Gavrilov var blankur eftir að hafa eytt öllum peningunum sínum í áfengi og fjárhættuspil. Vildi hann að móðir sín léti hann hafa hluta af eftirlaunum sínum til að kaupa meira áfengi en á það féllst móðirin ekki.

Gavrilov byggði málsvörn sína að hluta til á því að hann hafi verið svangur, hann ætti engan pening fyrir mat og hafi því þurft að leggja móður sína sér til munns. „Mér fannst kjötið ekki gott. Það var of feitt. En ég var svangur, svo ég varð að borða það,“ er haft eftir honum á vefsíðu breska blaðsins Daily Mail.
Eftir að hann drap móður sína setti hann lík hennar út á svalir íbúðar þeirra í borginni Samara í suðurhluta Rússlands. Hann stal peningunum hennar og fór á tveggja daga fyllerí. Þegar hann snéri til baka var enginn matur til í íbúðinni.

Geðlæknir úrskurðaði að maðurinn væri heill heilsu og hann hafi haft fullan skilning á gjörðum sínum. Morðingar eru yfirleitt dæmdir í fimmtán ára fangelsi í Rússlandi en af því maðurinn játaði sök og var svangur hlífði dómarinn honum við lífstíðardómi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.