ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Olíufélögin gagnrýnd fyrir litla upplýsingagjöf

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
17:21 › 11. nóvember 2009
Neytendasamtökin hvetja olíufélögin til að taka upp fyrri starfshætti og birta á heimasíðum sínum verð á eldsneyti á öllum stöðvum sem þau reka.

Neytendasamtökin hvetja olíufélögin til að taka upp fyrri starfshætti og birta á heimasíðum sínum verð á eldsneyti á öllum stöðvum sem þau reka. Mynd Photos

Neytendasamtökin hvetja olíufélögin til að taka upp fyrri starfshætti og birta á heimasíðum sínum verð á eldsneyti á öllum stöðvum sem þau reka. Frá árinu 2004 hefur dregið úr miðlun upplýsinga á bensínverði á netinu.

Á þeim tíma birtu öll olíufélögin á heimasíðum sínum verð á einstökum stöðvum nema Olís, sem birti eingöngu verð á stærstu stöðvunum. N1 fylgdi í kjölfarið og birti aðeins algengasta verðið en nú birtir N1 aðeins lægsta verðið. Olís fylgdi á eftir og nú síðast Shell, að því er kemur fram á heimasíðu samtakanna. Þetta harma Neytendasamtökin. Þess má geta að Orkan, Atlantsolía og ÓB birta verð á öllum stöðvum.

Árétting
Á heimasíðu Shell má finna upplýsingar um verð á öllum afgreiðslustöðvum, ef smellt er á hnappinn „Einstaklingar“ og svo „eldsneytisverð“.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.