„Hún er búin að lofa honum hvolpi og er búinn að fá að dvelja á skammtímavistuninni síðan klukkan þrjú í dag,“ segir Helga Elísdóttir, amma níu ára drengs sem Barnavernd Reykjavíkur hefur ákveðið að senda til fósturforeldra á föstudag, í samtali við DV.is. Hún furðar sig á því að kona, sem sótt hefur um að gerast fósturforeldri drengsins, sé búin að vera hjá honum í allan dag og segir að konan hafi lofað barnabarni sínu hvolpi fái hún forræði yfir honum.
Grét þegar amma fór
Helga segir að hún hafi fengið að vera hjá barninu í eina og hálfa klukkustund í dag. Hún hafi svo farið frá honum um hálf tvö leytið og hann hafi grátið mikið þegar hún fór. Helga segir að drengurinn hafi hringt í sig fyrr í kvöld til að bjóða góða nótt. Þá hafi hann sagt henni að væntanleg fósturmóðir hafi komið skömmu eftir að hún fór og væri þar enn þegar þau töluðu saman um hálf tíu leytið í kvöld. Helga segir að starfsmaður skammtímavistunarinnar hafi staðfest þetta.
Afar undrandi
„Mér skilst að hún eigi að fá að lesa fyrir hann þegar hann fer að sofa,“ segir Helga sem var mikið niðri fyrir þegar blaðamaður ræddi við hana. Hún er afar undrandi á því að ókunnug kona hafi fengið að dvelja hjá barninu í allan dag meðan hún, amman, fái ekki að hitta hann nema í um klukkustund á dag.
Má ekki svæfa drenginn
„Ég spurði hana (starfsmanninn) hvernig þetta gæti átt sér stað miðað við það að það væri búið að kyrrsetja barnið. Er verið að beita hann heilaþvotti? Ég veit ekki hvað er verið að reyna að gera við þetta aumingjans litla barn. Ég hef fengið að svæfa það en nú má ég ekki vera þarna nema augnablik en þeir hleypa þessari konu inn á barnið. Þetta er svo ótrúlegt að engin manneskja trúir þessu,“ segir Helga.
Móðirin edrú í sex mánuði
Í DV í dag er greint frá forsögu málsins. Þar kemur fram að Helga hafi haft drenginn og þrettán ára gamlan bróður hans í sinni umsjá síðan í september 2008 á meðan móðir drengjanna vann í því að koma lífi sínu á réttan kjöl á ný eftir að hafa glímt við áfengisvandamál. Móðir piltanna hefur verið edrú í sex mánuði og er í góðri vinnu.
Sendur til fósturforeldra á föstudag
Helga segir dóttur sína hafa verið langt komna með að ná lífi sínu á réttan kjöl er starfsmenn Barnaverndar tilkynntu þeim að níu ára gamli drengurinn yrði sendur til fósturforeldra næstkomandi föstudag. Þetta hafi verið mikið álag en dóttirin staðist það.
Kveðjuveisla á morgun
Helga fór með drenginn á knattspyrnuæfingu á laugardag og í fjóra tíma á skauta á sunnudag. Auk þess fékk hún að svæfa drenginn á kvöldin en nú hefur henni verið meinað að svæfa barnið á kvöldin og má ekki hitta það nema í klukkutíma á dag.
Barnavernd harmar umfjöllun um málið
Breiðavíkursamtökin og Kumbaravogssamtökin hafa fordæmt framferði Barnaverndar Reykjavíkur fyrir framgangsmátann í málinu og segja söguna sýna að slíkar nefndir geti hæglega haft rangt fyrir sér. Benda samtökin á reynslu Breiðavíkurbarna og barna á öðrum vistheimilum. Í tilkynningu frá Barnavernd Reykjavíkur í kvöld var umfjöllun um málefni barnsins hinsvegar hörmuð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna