Skilanefnd gamla Landsbankans hefur stefnt fjárfestingafélaginu Gilft vegna útistandandi skuldar félagsins við bankann. Fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Skuldin er tilkomin vegna afleiðusamninga Giftar við bankann. Fjárfestingafélagið Gift varð til árið 2007 þegar fulltrúarráð eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga samþykkti að færa eignir félagsins, sem metnar voru á um 60 milljarða króna, inn í Gift.
Gift er tengt nöfnum framsóknarmannanna Finni Ingólfssyni og Helga S. Guðmundssyni en eignarhaldsfélag var meðal hluti af S-hópnum sem keypti Búnaðarbankann af íslenska ríkinu árið 2003. Staða félagsins hefur versnað mjög á liðnum árum og í lok árs í fyrra var talið að skuldir þess væru komnar upp í um 30 milljarða króna. Síðan þá hafa allir helstu aðstandendur félagsins, meðal annars Finnur og Helgi, yfirgefið það. Félagið átti meðal annars hlutabréf í Exista og Kaupþingi. Skilanefnd var skipuð yfir Gift í lok síðasta árs.
Samkvæmt heimildum DV hafa aðstandendur Giftar reynt að ná samkomulagi við gamla Landsbankann um uppgjör á skuldinni. Það hefur hins vegar ekki gengið þar sem staða félagsins er afar slæm. Þrautalending skilanefndarinnar var því að höfða mál gegn Gift.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ