Kreppan á Íslandi á eftir að kosta Íslendinga meira en aðrar kreppur hafa kostað annarsstaðar. Mynd DV
Kreppan á Íslandi á eftir að kosta Íslendinga meira en aðrar kreppur hafa kostað annars staðar, jafnvel um 85 prósent af landsframleiðslu. Þetta segir Mats Josefsson, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í endurreisn bankanna. Hann segir stjórnvöld hafa staðið sig illa í að upplýsa almenning og markaðinn um stöðu þeirra eftir að efnahagshrunið skall á síðasta haust.
Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV en Josefsson hélt erindi á ráðstefnu Capacent Glacier í dag. Erindi Josefsson fjallaði um fjárfestingu á Íslandi og hvernig íslenskt efnahagslíf getur komist á réttan kjöl á nýjan leik. Í erindinu sagði Josefsson, samkvæmt frétt RÚV, að ríkisstjórnin hafi tekið sér allt of langan tíma í að endurreisa bankakerfið. Ástæðuna megi meðal annars rekja til þess að engum einum aðila var falið að hafa umsjón með endurreisninni.
„Við vitum að samkvæmt spám aukast skuldir Íslendinga um næstum 90 prósent og miðað við þann kostnað sem þegar hefur orðið, giska ég á að kostnaður vegna kreppunnar verði um 85prósent af landsframleiðslu,“ sagði Josefsson. Hann benti einnig á að endurreisn Íslands hafi þegar tekið eitt ár en í Tyrklandi hafi hún til samanburðar aðeins tekið eitt ár. Þetta auki kostnaðinn mikið af kreppunni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna