ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.1° 12m/s WSW

Íslendingur vann 107 milljónir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:37 › 11. nóvember 2009

Íslendingur datt heldur betur í lukkupottinn þegar dregið var í Víkingalottóinu í kvöld. Sá er 107 milljónum króna ríkari eftir að hafa keypt sér miða í Videómarkaðnum Hamraborg. Er þetta í fimmtánda skipti sem fyrsti vinningur í Víkingalottóinu kemur til Íslands.

Íslendingurinn skiptir fyrsta vinningnum með Norðmanni sem fær sömu upphæð í sinn hlut. Þó þetta sé ekki í fyrsta skipti sem fyrsti vinningur kemur til Íslands er þetta stærsti vinningurinn hingað til. Vinningsmiðinn er 10 raða sjálfvalsmiði án Jókers sem kostaði 500 krónur og var seldur í dag, miðvikudag. Eru þeir sem keyptu miða í Vídeómarkaðnum í dag beðnir um að skoða miðana sína vandlega.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.