Hér sést Francis Dean með einn af þeim mörgu sleikibrjóstsykrum sem hann fékk eftir að hafa klárað matinn sinn.
Tveggja ára piltur frá Bretlandi, Francic Dean, lést eftir að sleikibrjóstsykur losnaði af spítunni með þeim afleiðingum að hann festist í hálsi hans. Þrettán ára gamall bróðir hans reyndi að bjarga litla bróður sínum en án árangurs. Hann var látinn.
Foreldrar Francis litla segja í samtali við breska blaðið Daily Mail að dauði sonar þeirra ætti að vera öðrum foreldrum víti til varnaðar. Þau hafa einnig kallað eftir því að sælgætisframleiðendur hafi áberandi merkingar á umbúðum sínum þar sem varað er við neyslu sælgætis sem getur staðið í börnum.
„Við erum í rusli. Þetta er algjör martröð. Hann fékk oft sælgæti eða ís eftir að hann kláraði matinn sinn,“ segir faðir Francis, David Dean. „Hann var búinn að vera upp í honum í innan við hálfa mínútu þegar bróðir hans tók eftir því að hann átti í erfiðleikum með að anda. Hann greip í spítuna en þá hafði brjóstsykurinn losnað af og hann var fastur í hálsinum á honum,“ segir hann.
Sleikibrjóstsykurinn var af tegundinni Swizzels Matlows Lots of Lollies en foreldrar hans höfðu keypt poka með nokkrum sleikibrjóstsykrum í. Utan á pokanum voru varnaðarorð þar sem fram kom að sleikjóar gætu valdið köfnun og væru ekki ætlaðir börnum yngri en þriggja ára. Faðirinn gagnrýnir hinsvegar að engar slíkar merkingar hafi verið að finna á umbúðunum utan um sjálfan sleikjóinn.
„Ég vil hvetja framleiðendur til að merkja vörur sínar betur og beini því til foreldra að það er aldrei of varlega farið,“ segir hann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung