ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Fundu verkamenn 300 kílóa risasnák í Kína?

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:27 › 11. nóvember 2009
Gabb eða alvöru snákur? Snákurinn er sagður hafa verið 300 kíló og tæpir sautján metrar á lengd.

Gabb eða alvöru snákur? Snákurinn er sagður hafa verið 300 kíló og tæpir sautján metrar á lengd. Mynd Ananova

Kínverskir verkamenn, sem voru að vinna við að leggja nýjan veg rétt utan við borgina Guping í Jiangxi-héraði, fundu sannkallaðan risasnák á dögunum. Hann vó hvorki meira né minna en 300 kíló, var tæpir sautján metrar á lengd og talinn vera 140 ára gamall.

Myndin af snákinum hefur nú farið eins og eldur í sinu um netheima en það var People‘s Daily, dagblað kínverska kommúnistaflokksins, sem birti hana fyrst. Margir eru þó efins um að myndin sé raunveruleg og telja að um gabb sé að ræða þar sem snákar af slíkri stærðargráðu eru ekki landlægir á svæðinu.

Hvað sem því líður þá segir í frétt blaðsins að verkamennirnir hafi fundið snákinn þegar þeir voru að ryðja jarðvegi burt með risavöxnum vinnuvélum. Svo virðist sem ein vinnuvélin hafi ekið yfir snákinn og var hann í dauðateygjunum þegar verkamennirnir komu auga á hann. Þá kemur fram í frétt blaðsins að ökumaður gröfunar hafi verið svo lamaður af hræðslu að hann hafi síðar fengið hjartaáfall og síðar látist á leiðinni á spítala.

Ekki hefur endanlega verið fengið úr því skorið hvort myndin sé raunveruleg eða ekki og verða lesendur að dæma fyrir sig.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.