ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Fólk geti skilað lyklunum

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
16:34 › 11. nóvember 2009
„Þetta er spurning um einstaklingsfrelsi auk þess sem skuldurum er gefið val á kostnað kröfuhafa,“ segir Lilja.

„Þetta er spurning um einstaklingsfrelsi auk þess sem skuldurum er gefið val á kostnað kröfuhafa,“ segir Lilja. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir

„Þetta frumvarp gengur fyrst og fremst út á að ekki sé leitað út fyrir hina veðsettu eign til að fá upp í skuldina. Fólk á þannig að geta haldið bílunum sínum, inneignum á bankabókum og húsgögnum. Þetta snýst um að fólk geti skilað lyklunum og labbað út án þess að missa allt,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.

Lilja mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til laga þar sem sú grundvallarbreyting að lánveitandi, sem lánar fé gegn veði í fasteign, megi ekki ganga að öðrum eignum lántakans en viðkomandi fasteign. Fólk geti þannig skilað lyklunum að íbúð sinni en losnað þannig við allar eftirstöðar.

Laust allra mála
„Við takmörkum þetta við fasteign vegna þess að við erum að ganga á eignarrétt kröfuhafa. Við teljum ekki rétt að yfirfæra þetta yfir á bifreiðar eða aðrar eignir. Fólk sem leggur bíl eða aðrar eignir að veður verður að bera ábyrgð á því,“ segir Lilja.

Frumvarpið breytir því ekki að ef foreldrar hafa til dæmis lagt húsnæði sitt að veði vegna íbúðakaupa barns, getur kröfuhafi gengið að því veði. Hún segir enn fremur að frumvarpið gagnist helst þeim sem nýlega hafi keypt sér íbúð og sjái ekki fram á að eignast húsnæðið, í fyrirsjáanlegri framtíð. Í ljósi forsendubrests sé það mikið réttlætismál, ekki síst fyrir ungt og vel menntað fólk sem nýlega hafi stofnað til skulda, að hafa val um það hvort það reynir að eignast húsnæðið eða ekki.

„Þetta er spurning um einstaklingsfrelsi auk þess sem skuldurum er gefið val á kostnað kröfuhafa,“ segir hún en bætir við að frumvarpið muni fjölga þeim sem fari í þrot. Henni finnist hins vegar sjálfsagt að leyfa ungu fólki að labba út.

Nánar um málið á neytendasíðu DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.