ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Bretar þykja of ljótir fyrir stefnumótasíðu fallega fólksins

14:45 › 11. nóvember 2009
Aðeins fyrir útvalda. BeautifulPeople.com stefnumótasíða fallega fólksins.

Aðeins fyrir útvalda. BeautifulPeople.com stefnumótasíða fallega fólksins. Mynd af vefsíðu BeautifulPeople.com

Bretar eru ein ófríðasta þjóð veraldar ef marka má nýja umdeilda stefnumótasíðu sem leyfir einungis fallegu fólki að fá inngöngu. Á 48 klukkustunda tímabili dæma meðlimir síðunnar myndir og upplýsingar fólks sem sækir um inngöngu, þyki fólk nógu huggulegt fær það inngöngu. Bretar eiga varla séns.

Fram kemur í Daily Telegraph í dag að innan við einn af hverjum átta breskum karlmönnum og um þrjár af hverjum tuttugu breskum konum, sem sótt hafa um inngöngu á BeautifulPeople.com, hljóti náð fyrir augum „fallega fólksins“ sem gefur einkunn sem byggir á nýlegri mynd og persónulegum upplýsingum viðkomandi.

Sænskri karlmenn og norskar konur
Sænskir karlmenn hafa verið hlutskarpastir í kosningunum en 65 prósent þeirra komast inn. Norskar konur þykja greinilega fallegastar því 76 prósent þeirra komast inn.

Frá því vefsíðan opnaði fyrir breskum almenning hafa tæplega 300 þúsund Bretar sótt um á síðunni í von um að finna sanna ást en aðeins um 35 þúsund hafa verið samþykktir.

Þessi stefnumótasíða fallega fólksins var stofnuð árið 2002 í Danmörku en í síðasta mánuði hóf hún útrás sína á alþjóðlegan markað að því er segir í frétt Telegraph.

Síðustu tvær vikur hefur samfélag fallega fólksins hafnað nærri tveimur milljónum umsækjenda frá 190 löndum, en aðeins tekið inn 360 þúsund manns.

Bretar ekki með útlitið á heilanum
„Það er erfið spurning afhverju Bretum gengur svona illa á síðunni,“ segir Greg Hodge einn af stjórnendum síðunnar, sem tekur þessa staðreynd persónulega enda er hann sjálfur enskur.

„Ég held að það sé minni áhersla á útlitið í Bretlandi en annarsstaðar. Fólk virðist meðvitaðra um heilsuna og útlitið í útlöndum. Hér í Bretlandi er fólk afslappaðra og vill bara fá sér nokkra gráa á kránni eftir vinnu í stað þess að pæla í útlitinu.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.