Breskur almenningur er ekki sá heppnasti með útlit samkvæmt vefsíðunni BeautifulPeople.com. Á vefsíðunni geta notendur sent inn myndir af sjálfum sér og notendur af gagnstæðu kyni gefa þeim svo einkunn fyrir útlit. Þeir sem fá tilskilda lágmarkseinkunn gerast síðan fullgildir meðlimir í netsamfélagi fallega fólksins.
Það er breska blaðið Daily Telegraph sem greinir frá þessu í dag. Í frétt blaðsins kemur fram að hlutfallslega fæstir Bretar hafi fengið aðgang, eða tólf prósent karla sem sóttu um og fimmtán prósent kvenna.
Notendur síðunnar geta valið úr fjórum valmöguleikum þegar þeir skoða myndir umsækjenda og eru myndirnar aðgengilegar í 48 klukkustundir. Að þeim tíma loknum fá umsækjendur að vita hvort þeir séu nógu fallegir til að gerast meðlimir. Meðal karla þykja þeir sænsku myndarlegastir en hjá konum þær norsku. Síðan vefsíðan var sett á laggirnar í Danmörku árið 2002 hafa 295 þúsund sótt um og 35 þúsund fengið samþykki.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu