Þegar blaðamann og ljósmyndara bar að garði í vikunni voru tveir menn að vinna í bústað Björns. Veðrið var afleitt, mikið rok og rigning. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Björn Leifsson í World Class er að minnsta kosti með tvo menn í vinnu við bústað sinn á Þingvöllum þótt hann segist hafa lagt fram stóran hluta vinnunnar sjálfur. Bygging bústaðarins er í fullum gangi, jafnvel í úrhellisrigningu og hávaðaroki.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á sunnudag lét Björn hafa eftir sér að hann hefði sjálfur lagt stóran hluta vinnunnar fram í bústaðnum. Þegar blaðamann og ljósmyndara DV bar að garði á Valhallarstíg fyrripart vikunnar voru þar hins vegar tveir menn að störfum í úrhellisrigningu og hávaðaroki svo varla var stætt. Hvorugur þeirra var Björn.
Þá lét hann einnig hafa eftir sér að hann liti á bústaðinn sem fjárfestingu og ætlaði sér ekki að dvelja þar sjálfur. Þegar DV hafði samband við Björn til að spyrja hver myndi þá nota bústaðinn vildi hann engu svara.
Meira um málið í DV í dag



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
