ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Ævintýri í óbyggðum: Rak burt á ísjaka og skaut ísbjörn í sjálfsvörn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:01 › 11. nóvember 2009
Pilturinn var hætt kominn enda í miðjum óbyggðum á kanadíska heimskautasvæðinu.

Pilturinn var hætt kominn enda í miðjum óbyggðum á kanadíska heimskautasvæðinu. Mynd Photos

Sautján ára piltur var hætt komin á dögunum þegar hann var á ísbjarnaveiðum ásamt frænda sínum á heimskautasvæði Kanada. Pilturinn, sem er sautján ára, varð viðskila við frænda sinn þegar þeir voru staddir um sautján kílómetrum frá smáþorpinu Coral Harbour.

Frændurnir voru á vélsleða en svo óheppilega vildi til að hann bilaði. Þar sem mennirnir voru símalausir ákváðu þeir að ganga sem leið lá í þorpið. Þeir urðu þó viðskila við hvorn annan og rak sá yngri burt á ísjaka. Tilkynnt var um hvarf þeirra seint á laugardag en frændi piltsins fannst heill á húfi á sunnudagsmorgunn.

Óhætt er að segja að saga yngri piltsins sé lyginni líkust enda hafði hann rekið burt á ísjaka á svæði sem er mjög erfitt yfirferðar fyrir björgunarsveitamenn. Pilturinn komst meðal annars í návígi við svangan ísbjörn sem var með þremur húnum. Þurfti pilturinn að skjóta ísbjörninn til að forðast það að vera étinn.

Það var svo þegar farið var að kvölda á sunnudag að flugmaður lítillar flugvélar kom auga á piltinn þar sem hann var á ísjakanum. Hann missti þó sjónar af honum skömmu síðar. Á mánudagsmorgunn fannst hann hinsvegar aftur og hafði hann þá borist 32 kílómetra leið frá staðnum þar sem vélsleðinn fannst. Tveir björgunarsveitarmenn náðu í piltinn með því að stökkva úr flugvél í fallhlífum. Pilturinn þjáðist af ofkælingu þegar hann fannst en læknar búast við því að hann nái sér að fullu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.