ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Washington-leyniskyttan verður tekin af lífi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:44 › 10. nóvember 2009
John Allen Muhammad.

John Allen Muhammad.

John Allen Muhammad sem stóð að baki leyniskyttuárásana í úthverfum Washington í Bandaríkjunum árið 2002 verður tekinn af lífinu næstkomandi þriðjudag með banvænni sprautu. Tim Kaine, ríkisstjóri í Virginíufylki staðfesti dauðadóminn í dag.

Á þremur vikum í október árið 2002 drap Muhammad ásamt Lee Boyd Malvo tíu manneskjur og særði þrjár. Árásirnar hefðu geta verið mun verri því upprunalega markmið Muhammed var að drepa sex manneskjur á hverjum degi í þrjá daga.

Þeir drápu fimm manneskjur á fyrsta degi en svo hægðu þeir á sér vegna þess að þeir höfðu áhyggjur af mögulegum sjónarvottum og að hafa ekki nægjanlega greiðar flóttaleiðir. Saksóknarar segja morðin hafa verið yfirvarp yfir raunverulegt markmið Mohammad um að drepa fyrrverandi eiginkonu sína og fá þar með forsjá yfir börnunum sínum þremur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.