Ýmislegt má finna á stefnumótasíðunni Einkamál.is, allt frá sannri ást til fréttamanna sem dulbúa sig sem vændiskonur. Ein auglýsing hefur þó vakið athygli en þar er par að auglýsa 30 fermetra stúdíóíbúð í 101 Reykjavík til leigu.
Það er kannski ekki til frásögu færandi nema fyrir þær sakir að hún leigist endurgjaldslaust til „réttrar konu sem er tilbúin að sofa hjá okkur annað slagið,“ eins og það er orðað í auglýsingunni.
Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 á sunnudaginn virðist gríðarleg eftirspurn vera eftir vændi hér á landi. Á einum sólarhring svöruðu um hundrað manns einkamálaauglýsingu fréttastofu Stöðvar 2 á síðunni Einkamál.is og vildu þeir kaupa vændi af nítján ára gamalli stúlku. Tveir þeirra mæltu sér meira að segja mót við tálbeitu fréttastofunnar. Síðan virðist þó notuð í ýmislegt annað en að auglýsa vænda ef marka má íbúðarauglýsinguna.
Ekki er vitað hvort parinu sem auglýsti íbúðina hafi tekist að finna sér leigjanda en auglýsingin hefur verið skoðuð rúmlega átta þúsund sinnum síðan hún var sett inn þann 16. október síðastliðinn.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir