ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Þriggja ára strákur skaut sig í andlitið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:02 › 1. nóvember 2009
Þriggja ára strákur skaut sig í andlitið sem skammbyssu ömmu sinnar.

Þriggja ára strákur skaut sig í andlitið sem skammbyssu ömmu sinnar.

Þriggja ára gamall strákur frá Rialto í Kaliforníu liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hafa skotið sjálfan sig í andlitið með skammbyssu á heimili ömmu sinnar.

Lögreglan í Rialto segir í samtali við Fox-fréttastofuna að amman hafi forræði yfir drengnum, en rannsóknarmenn reyna nú að komast að því hvernig drengurinn komst yfir skammbyssuna. Talið er fullvíst að um slysaskot hafi verið að ræða.

Lögreglan segir byssukúluna hafa farið inn um nösina á drengnum. Hann gekkst undir klukkustundarlanga skurðaðgerð en liggur, sem áður segir, þungt haldinn í lífshættu á sjúkrahúsinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.