„Þeir eru grande grande,“ segir Jón Garðar Ögmundsson, eigandi Metro sem áður rak McDonalds staðina á Íslandi um nýju hamborgarana. Metro hóf í dag að selja hamborgara sem framleiddir eru úr íslensku hráefni. Áður kom mest allt hráefni erlendis frá sem er sama fyrirkomulag og á öðrum McDonalds matsölustöðum í heiminum.
Jón Garðar segir að það sé búið að vera fullt út úr dyrum á nýju Metro stöðunum í dag. „Bílaröðin er auk þess endalaus,“ segir hann.
Hann segir viðskiptavini almennt ánægða með breytinguna. „Það fara alllir brosandi út,“ segir Jón Garðar.
Jón Garðar segir að Metro hafi á einungis fimm klukkutímum breytt öllum skiltum og merkingum á matsölustöðunum. Það sé nánast kraftaverk hversu hratt þeim tókst að breyta. „Öll skilti,umbúðir, vörurnar. Þetta gerir engir nema atvinnumenn.
Hann segist ekki sjá betur en að Íslendingar taki breytingunum fagnandi. Að lokum hvetur hann alla landsmenn til að bragða á nýju borgurunum. „Það bætir útlitið,“ segir jón Garðar hlæjandi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð