Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Grímuklæddur maður vopnaður hníf réðist á konu á heimili hennar í Nederland í Colorado í Bandaríkjunum á laugardaginn en Hrekkjavaka var haldin hátíðleg þar í gær. Árásarmaðurinn bar að sögn konunnar grímu líkt og morðingjarnir í Scream-hryllingsmyndunum.
Árásarmaðurinn réðist á konuna með hnífnum og skar hana á handleggjum og andliti eftir að hún hafði farið til dyra þegar maðurinn hringdi dyrabjöllunni hjá henni.
Scream-árásarmaðurinn lagði á flótta þegar hundar konunnar mættu á vettvang. Konan var flutt á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hennar en hún mun ekki hafa særst lífshættulega.
Lögreglan er engu nær í leit sinni að árásarmanninum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu