ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Rafeindavirki stefnir Ástþóri

Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@dv.is
15:01 › 1. nóvember 2009
Ástþór Magnússon.

Ástþór Magnússon.

Fyrirtækið Rafeindavirkinn sf. hefur stefnt fyrrverandi forsetaframbjóðandanum Ástþóri Magnússyni fyrir ógreiddar skuldir. Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson, lögmaður Rafeindavirkjans segir um einfalt innheimtumál að ræða. Fyrirtækið hafi unnið fyrir Ástþór og nú sé deilt um réttmæti kröfunnar. Sigurbjörn vill annars lítið tjá sig um eðli málsins en segir það ósköp einfalt, ekkert merkilegt og snúast um litlar fjárhæðir.

Rafeindavirkinn sérhæfir sig meðal annars í loftnetum, tölvum, dyrasímum og gervihnattabúnaði en selur einnig ýmiss konar skotfæri og -vopn. Vinna fyrirtækisins fyrir Ástþór tengist útvarpsstöðinni Lýðvarpið sem Ástþór stofnaði í febrúar og reikninga sem Ástþór hefur ekki borgað. Á tíma stofnunar Lýðvarpsins var Ástþór í framboði fyrir flokk sinn Lýðræðishreyfinguna sem hlaut vægast sagt hrikalega útreið í kosningunum í lok apríl.

Ástþór er með lögheimili á Spáni og er eigandi Goldbank, fyrirtækis sem býðst til að kaupa gull af almenningi. Hann sendi seðlabankastjóranum Má Guðmundssyni bréf fyrir stuttu þar sem hann bauðst til að að kaupa gullforða bankans, heil tvö tonn af gulli.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.