ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Nauðgari með sex lík á heimili sínu handtekinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 1. nóvember 2009
Anthony Sowell. Var með sex lík falin í og við heimili sitt. Handtekinn í gær.

Anthony Sowell. Var með sex lík falin í og við heimili sitt. Handtekinn í gær.

Lögreglan í Cleveland í Bandaríkjunum hefur handtekið kynferðisglæpamanninn Anthony Sowell en hann var eftirlýstur eftir að lögreglan fann sex lík í og við heimili hans í síðustu viku. Sowell var handtekinn á gangi um götur Cleveland í gær en hann var eftirlýstasti maður Ohio-ríkis í nokkrar klukkustundir.

Forsaga málsins er sú að lögreglan í Cleveland var kölluð að heimili Sowells á fimmtudaginn eftir að tilkynning barst um að þar hefði verið framin nauðgun og líkamsárás. Þegar lögreglan fór að kanna heimili hans nánar fundust tvö illa rotnuð lík á þriðju hæð hússins. Þriðja líkið fannst síðan í kjallara hússins á föstudaginn og jarðneskar leifar þriggja annarra fundust svo í og við hús hans síðar sama dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.