ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Mafíumorðinginn handtekinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:37 › 1. nóvember 2009

Lögreglan í Ítalíu hefur handtekið morðingjann sem náðist á eftirlitsmyndavél er hann skaut Mariano Bacio Tarracino til bana fyrir utan matvörubúð í Naples í Ítalíu. Morðinginn náðist tveimur dögum eftir að lögreglan opinberaða myndband af morðinu en hún hefur ekki opinberað nafn morðingjans. Tarracino tengdist mafíu samtökum í Napólí og var á sakaskrá.

Morðinginn skaut tveimur skotum í Tarracino, fyrst í bakið og síðar í höfuðið. Myndbandið sýnir hvernig sjónarvottur létu morðið sig lítið varða en talið er að enginn af sjónarvottunum hafi þorað að aðhafast af hræðslu við mafíuna. Ein kona lyfti þó höfði Tarracino til að ganga úr skugga um hvort hún þekkti manninn. Þá gekk einn sjónarvotturinn beinlínis yfir líkið og lét líkt og það væri ekki þarna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.