ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Icesave: Lilja segir nei og Ögmundur óbundinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:16 › 1. nóvember 2009
Lilja Mósesdóttir.

Lilja Mósesdóttir.

  • Ögmundur Jónasson.

    Ögmundur Jónasson.

Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna sagðist ekki geta samþykkt Icesave samninginn í Silfri Egils í dag. Hún kvaðst hafa notað föstudaginn til að skoða frumvarpið og niðurstaðan var þessi. Aðspurð hvort hún styddi ríkisstjórnina sagðist hún ekki tengja saman ríkisstjórnina og Icesave samninginn. „Ég styð þessa ríkisstjórn,“ sagði Lilja.
Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna segir ummæli Lilju vera svipuð og hann hefur lagt upp með.

„Ég hef viljað aðskilja Icesave og líf ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin hefur hinsvegar alltaf viljað halda þessu saman tengdu. Sem var ástæða þess að ég gekk út úr stjórninni þegar þess var krafist að ég talaði einni rullu um samningana og vinnubrögðin í tengslum við þá,“ sagði Ögmundur í samtali við DV.is.

Hann segir málið verða að fá þinglega meðferð og hann gangi óbundinn að þeirri vinnu.

„Sú vinna er framundan og og ég ætla að standa við það sem ég sagði á sínum tíma að ég myndi ekki taka afstöðu fyrr en að lokinni þinglegri meðferð málsins,“ sagði Ögmundur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.