Sun Meng skelfur eins og hrísla kviknakinn fyrir utan gluggann hjá ástkonu sinni og eiginmanni hennar.
25 ára kínverskur karlmaður sem neyddist til að flýja reiðan eiginmann ástkonu sinnar á dögunum með því að stökkva nakinn út á gluggasyllu íbúðar hjónanna. Eiginmaðurinn hafði komið að Sun Meng í rúminu með eiginkonu sinni en athugull vegfarandi tók mynd af uppákomunni og hefur Meng nú verið útilokaður úr samfélaginu.
Ljósmyndarinn birti myndirnar af Meng á Netinu þar sem hann stendur kviknakinn fyrir utan gluggann á íbúð hjónanna í Chengdu í Kína og þá sést glitta í reiðan eiginmanninn hóta honum öllu illu út um gluggann.
„Fjölskylda mín skammast sín fyrir mig og nágrannar mínir vilji ekki tala við mig,“ er haft eftir Meng. „Ég veit að það sem ég gerði er rangt en ég óttaðist að hann myndi drepa mig,“ bætir Meng við í samtali sem birtist á vef Telegraph.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung