„Það liggur fyrir að þar féllu orð sem eru meiðyrði að mínu viti,“ sagði Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, um þátt Egils Helgasonar á Ríkissjónvarpinu, Silfur Egils, í þættinum Á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun en Jón sagði ummæli í garð sonar hans og Davíðs Oddssonar í Silfri Egils jaðra við meiðyrði en sonur Jóns er Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Í þættinum var rætt við Jón og Pál Magnússon útvarpsstjóra um málefni Ríkisútvarpsins.
Jón gagnrýndi Ríkisútvarpið fyrir að skera sig ekki úr hvað varðar fréttaflutning. „Ég tel að Ríkissjónvarpið sé beinlínis hlutdrægt og þá tek ég til dæmis Egil Helgason sem hefur gengið gjörsamlega út fyrir allt velsæmi aftur og aftur,“ sagði Jón og taldi að menn sem Egill hefði lagt í einelti að hans mati hafa engan kost á að svara fyrir sig.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir