Yfirvöld í Kaliforníuríki Bandaríkjanna hafa áhyggjur af hækkandi tíðni sjálfsvíga meðal unglinga. Svo miklar áhyggjur að þau óttast jafnvel að sjálfsvíg séu að verða einhverskonar tískufyrirbrigði.
Fyrir tveimur vikum síðan framdi sextán ára piltur sjálfsvíg með því að fleygja sér fyrir hraðlest í Palo Alto í Kaliforníu. Fjórir aðrir nemendur frá Palo Alto hafa síðan þá framið sambærileg sjálfsvíg.
Fimmti unglingurinn mun hafa reynt að drepa sig við lestarspor í Palo Alto á dögunum en móðir hans og gangandi vegfarendur muna hafa náð að draga hann í burt áður en lestin fór yfir hann.
Yfirvöld klóra sér hreinlega í hausnum yfir þessari nýju sjálfsvígsbylgju og hafa af henni miklar áhyggjur.
Nýleg tölfræði í Bandaríkjunum sýnir að sjálfsvíg eru þriðja algengasta dánarorsök unglinga þar í landi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung