Konan sem knattspyrnustjarnan Marlon King kýldi í andlitið á skemmtistað í London hefur ákveðið að tjá sig við breska fjölmiðla. Í News Of The World í dag segir hún að höggið hafi verið eins og að fá múrstein í andlitið og hún vill að King fái aldrei að spila fótbolta framar.
King var í síðustu viku dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir árásina en atvikið átti sér stað á vinsælum næturklúbbi í London í desember. King gerðist fjölþreifinn við konuna og brást ókvæða við þegar hún vildi ekkert með hann hafa. Hinn kvænti þriggja barna milljónamæringur kýldi hana þá í andlitið með þeim afleiðingum að hún nefbrotnaði.
Konan heitir Emily Carr og er tvítug. King hefur verið rekinn frá félagi sínu Wigan Athletic en hann var í láni hjá Middlesbrough.
„King kýldi mig eins og atvinnumaður í boxi. Hann er til skammar og ætti aldrei að fá að spila knattspyrnu framar.“
„Á hverjum degi mætti ég í dómsal og varð óglatt. Þetta var skelfilegt. Hann starði á mig allan tímann og sýndi enga iðrun, það sagði mér allt sem ég þurfti að vita. Honum var alveg sama. Og þegar hann var dæmdur sekur varð mér litið á eiginkonu hans þar sem hún hélt um höfuð sér og ég hugsaði: „Núna veistu hvað hann hefur gert, jafnvel þótt þú viljir ekki trúa því.“ En ég vorkenni henni,“ segir Carr í samtali við NOTW.
Allt um mál Marlon King má finna með því að smella á „Marlon King dæmdur“ hér að neðan.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung