ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Dauði kjarnorkueftirlitsmanns ekki talinn vera sjálfsvíg

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:36 › 1. nóvember 2009
Höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Vín.

Höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Vín.

  • Timothy Hampton

    Timothy Hampton

Dauði breska kjarnorkusérfræðingsins Timothy Hampton er ekki lengur rannsakaður sem sjálfsvíg eftir að nýjar upplýsingar um dauða hans lágu fyrir eftir krufningu. Timothy féll af sautjándu hæð í byggingu Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg í Austurríki síðastliðinn fimmtudag og var í fyrstu talið að hann hefði framið sjálfsmorð.

Timothy vann við kjarnorkueftirlit hjá hjá Sameinuðu þjóðunum. Er nú talið að Timothy hafi verið kyrktur og borinn upp á sautjándu hæð byggingarinnar og þaðan fleygt niður og dauði hans látinn líta út fyrir að vera sjálfsvíg. Timothy starfaði við að rannsaka ólöglegar kjarnorkutilraunir og gengur sá orðrómur fjöllunum hærra í Bretlandi að hann hafi verið að rannsaka ólöglegar kjarnorkutilraunir í Íran en Sameinuðu þjóðirnar hafa þverneitað þeim orðrómi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.