Björn Leifsson, eigandi World Class, hefur fengið nóg af því að fara út að borða eða á skemmtistaði að næturlagi. Hann segist hafa fengið alveg nóg eftir að hafa verið ókrýndur konungur skemmtanalífsins í áratug en hann var þá rekstraraðili Ingólfskaffi og Þjóðleikhússkjallarans.
Eftir að Björn opnaði sína fyrstu líkamsræktarstöð gerðist hann síðar rekstraraðili vinsælla veitinga- og skemmtistaða, Ingólfskaffis og Þjóðleikhúskjallarans. Staðina rak hann í tíu ár og var kóngur næturlífsins um langt skeið. „Ég rak þarna vinsælustu skemmtistaði bæjarins og það var mjög gaman,“ segir Björn.
Björn segist varla hafa farið út að borða eða skemmta sér að næturlagi síðustu tíu ár. „Eftir 10 ár í bransanum fékk ég alveg nóg. Síðan vorum við komin með börn og svona, þá var gott að geta verið heima hjá sér um helgar. Að hætta í skemmtibransanum var mikill léttir og má segja að ég hafi ekki farið út að skemmta mér eða borða síðan,“ segir Björn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna