ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Bifvélavirki skemmdi bíla til að laga þá

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:18 › 1. nóvember 2009
Næstum hinn fullkomni glæpur.

Næstum hinn fullkomni glæpur.

Bifvélavirkinn Christopher Walls frá Johnson City í Bandaríkjunum varð uppvís að því á dögunum að fikta við kyrrstæða bíla til þess eins að geta gert við þá gegn þóknun. Lögreglan handtók Walls á fimmtudaginn var vegna svikamyllurnar.

Lögreglan segir Walls hafi átt við bifreiðar fyrir utan veitingastaði, beðið eftir að eigendurnir reyndu að koma þeim í gang og birtist síðan eins og sannkölluð himnasending og bauð fram þjónustu sína sem bifvélavirki. Lögreglan segir Walls hafa rukkað á bilinu 40 til 200 dollara fyrir viðgerðirnar. Walls hefur verið ákærður fyrir fiktið og lýsir lögreglan í Johnson City í Tennesse eftir fleiri fórnarlömbum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.