Helgi Felixson kvikmyndagerðarmaður segist ekki vera hræddur vegna reiði Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem vill láta klippa leyniupptökur út úr heimildarmyndinn Guð blessi Ísland: „Nei, ég er ekkert hræddur. Ég er vel vopnaður myndavélinni minni og ég skýt á allt sem hreyfist þannig menn skulu líka passa sig,“ segir Helgi. Mikið hefur verið rætt um kvikmyndagerðarmanninn síðustu daga sem mun frumsýna heimilarmynd sína um hrunið, Guð blessi Ísland, á þriðjudaginn. Helgi er í viðtali í helgarblaði DV þar sem hann ræðir um heimildarmyndina.
Ástæðan fyrir fjaðrafokinu í kringum Helga er sú að í myndinni tekur hann viðtöl við þrjá útrásarvíkinga: Bjarna Ármannsson, Björgólf Thor Björgólfsson og Jón Ásgeir Jóhannesson. Helgi ákvað hins vegar að vera með falda myndavél í viðtölunum og tók hann upp samtöl sín við þá að hluta til án þess að þeir vissu að verið væri að taka upp orð þeirra. Útrásarvíkingarnir þrír voru ekki sáttir við þetta og settu sig í samband við Helga til að lýsa því yfir.
Eins og hefur komið fram er Jón Ásgeir Jóhannesson sá sem hefur sig mest í frammi svo að hans myndbrotum verði eytt. „Jón Ásgeir hringdi strax og vildi að ég myndi eyða tveimur klukkutímum af efni. Bara eyða strax og staðfesta innan tveggja klukkutíma!“
Jón hefur ítrekað hringt og sent tölvupósta. „Ég svara samt engum símtölum því ég vil að allt sé skriflegt á milli okkar,“ segir Helgi en hvað stendur í póstunum? „Póstarnir eru engan veginn fallegir og langt fyrir neðan hans virðingu þar sem honum er mjög ábótavant í orðavali,“ segir Helgi sem segist þó ekki vera hræddur við Jón Ásgeir þrátt fyrir stóru orðin.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 

Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma