Sómalskir sjóræningjar vilja 4,2 milljón pund í lausnarfé fyrir bresku hjónin Paul og Rachel Chandler en það jafngildir 862 milljónum króna. Einn af sjóræningjunum hringdi í breska ríkisútvarpið BBC og lagði þar fram lausnargjaldskröfuna fyrir hjónin. „Ef þið vinnið okkur ekki mein þá látum við það ótalið að meiða hjónin. Við viljum aðeins fá litlar sjö milljónir dollara frá ykkur,“ sagði sjóræninginn í samtali við BBC.
Er hann var spurður um ástæðu þess að sjóræningjarnir krefðust lausnargjalds sagði hann það vera vegna aðgerða NATÓ sem hefðu haft í för með sér gríðarlega neikvæð áhrif fyrir íbúa í Sómalíu.
„Þeir hafa eyðilagt stóran hluta af veiðafærum sem eru í eigu fátækra sjómanna í Sómalíu,“ sagði hann og var lýsing hans á aðgerðum NATÓ ekki falleg og sagði sjö milljónir dollara ekki vera háa upphæð miðað við þær.
Það var á föstudag í síðustu viku sem sjóræningjarnir fóru um borð í snekkju þeirra hjóna. Þeir stálu öllum verðmætum úr snekkjunni og færðu þau síðan um borð í singapúrska flutningaskipið Kota Wajar. Frá Seychelles-eyjum var förinni heitið til Sómalíu og er talið að hjónin hafi verið flutt í lítinn strandbæ um 350 kílómetrum austur af höfuðborginni Mogadishu.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 
Lík fimm ára telpu fannst í Costa Concordia
Ákærður fyrir morð og nauðgun á 98 ára konu
„Eins og að vera í þvottavél“
Forsætisráðherrafrú leitar réttar síns
Stríðsfréttaritarinn Marie Colvin lést í sprengingu