ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Mansalsmálið: „Hver djöfullinn gengur á?“

14:33 › 30. október 2009
Hin handteknu hjón fullyrða að lögreglumenn hafi reynt að fá upplýsingar frá ungum börnum þeirra.

Hin handteknu hjón fullyrða að lögreglumenn hafi reynt að fá upplýsingar frá ungum börnum þeirra.

„Hver djöfullinn gengur á?,“ sagði einn þeirra þriggja Íslendinga sem hrepptir voru í gæsluvarðhald í mansalsmálinu, þegar lögreglan kom í heimsókn og gerði húsleit hjá honum. Hópur lögreglumanna, í skotheldum vestum, framkvæmdi húsleitina og handtók hann ásamt eiginkonunni fyrir framan 4 ára og 9 ára gömul börn þeirra. Lögreglan á Suðurnesjum hefur fram til þessa neitað frásögn hjónanna og hafnað að biðjast afsökunar fyrir harkalega handtöku í viðurvist barnanna.

Í frásögn hjónanna kemur fram að lögreglan hafi jafnframt reynt að fá upplýsingar útúr börnunum ungum áður en eiginmaðurinn kom sjálfur heim. Eftir að hafa verið tekinn hörðum tökum kom hann sér fyrir í stofusófa og hótaði lögreglunni að hennar biði málshöfðum þar sem farið yrði fram á háar skaðabætur. Í kjölfarið var hann handtekinn og frúin einnig.

Á heimili þeirra var lagt hald á 3 fartölvur, 2 heimilistölvur, eina myndavél, harðan disk, 2 armbandsúr, 500.000 kr. í reiðufé úr peningaskáp heimilisins og rúmar 100.000 krónur úr handtösku eiginkonunnar. Að hennar sögn var um að ræða peningar sem fengust fyrir sölu í Kolaportinu.

Eiginkonunni var haldið í 18 klukkutíma og faðir hennar óskaði eftir því við Svein Andra Sveinsson lögmann að verja dóttur hans. Henni var það tilkynnt í fangaklefanum og um leið fullyrt að ráðnings slíks stjörnulögfræðings yrði aðeins til þess að tefja málið. Að fengnum þeim ráðlegginginum hafnaði konan lögfræðiaðstoð, að eigin sögn.

Að endingu kemur fram í frásögn eiginkonunnar að á þeim átján klukkutímum sem hún sat í fangaklefa hafi henni ekki boðist matur fyrr en eftir hádegi daginn eftir. Hjónin segja börn þeirra nú hafa fengið barnasálfræðing til að vinna úr áfallinu sem því fylgir að hafa orðið vitni að handtökunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.