ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Mansalsmálið: Allir liggja ennþá undir grun

18:35 › 30. október 2009
  • Lögreglan útilokar ekki að allir hinna grunuðu verði ákærðir.

    Lögreglan útilokar ekki að allir hinna grunuðu verði ákærðir.

Rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum beinist enn að öllum þeim einstaklingum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi, þrátt fyrir að tveimur þeirra, báðir Íslendingar, hafi verið sleppt úr haldi. Rannsókn er í fullum gangi að sögn lögreglunnar og þaðan fást þau svör að ekki sé útilokað að gefin verði út ákæra á hendur öllum hinum grunuðu.

„Þó að við höfum ekki talið ástæðu til að halda öllum áfram þá er ekki þar með sagt að rannsókninni sé lokið gagnvart þeim. Við útilokum ekkert í rannsókninni eða þegar kemur að ákærum,“ segir Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurnesjum.

Gæsluvarðhald yfir þeim sexmenningum sem enn eru í haldi, fimm Litháum og einum Íslendingi, rennur út fjórða nóvember.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.