ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Hátekjufólk á atvinnuleysisbótum

12:18 › 30. október 2009

Ekkert þak hefur verið sett á laun þeirra sem þiggja hlutfallslegar atvinnuleysisbætur úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Þannig eru dæmi um að fólk með allt að 900 þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir 90 prósenta starf fái 10 prósent atvinnuleysisbætur á móti. Gissur Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunar, finnst þetta ekki réttlætanlegt.

„Ég tel óeðlilegt að einstaklingar með svo háar tekjur geti bætt sér upp tekjutap vegna minnkaðs starfshlutfalls með greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði.,“ segir Gissur.

Breyttar aðstæður á vinnumarkaði
Í nóvember á síðasta ári voru gerðar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar vegna sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði. Samkvæmt þeim lögum er heimilt að greiða hlutfallslegar atvinnuleysisbætur til fólks sem að kröfu vinnuveitanda hefur þurft að minnka starfshlutfall sitt. Sú heimild kemur einnig til ef fólk sem hefur verið í fullu starfi missir vinnuna en fær aðeins hlutastarf á nýjum stað.

Þegar atvinnuleysisbætur eru greiddar samhliða minnkuðu starfshlutfalli koma laun frá vinnuveitanda ekki til skerðingar atvinnuleysisbóta, en gerð er sú krafa að fólk sé í 50 prósenta vinnu eða meira.
Tekið skal fram að þessi ákvæði gilda ekki ef starfsmaður óskar sjálfur eftir því að minnka við sig í starfi.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.