ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Verðir gættu álforstjóra eftir sýruárás

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:16 › 3. október 2009
Verðir vakta húsið. DV sagði frá því í september að gæsla væri við íbúðarhús Rannveigar.

Verðir vakta húsið. DV sagði frá því í september að gæsla væri við íbúðarhús Rannveigar.

Rannveig Rist varð fyrir sýruárás við heimili sitt þann 5. ágúst síðastliðinn. Eins og fram kom í fjölmiðlum var málningu skvett á íbúðarhús álforstjórans um nóttina. Það sem ekki hefur komið fram, fyrr en nú, var að þegar Rannveig opnaði hurðina á bílnum sínum um morguninn skvettist sýra úr hurðarfalsinu framan í hana. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Sýran hafnaði rétt fyrir neðan hægra auga Rannveigar og er það alvarlegur að hún mun hljóta ör. Haft er eftir Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, að málið sé litið alvarlegum augum og verði tekið föstum tökum.

Einnig kemur fram að sýra hafi verið notuð þegar skemmdarverk voru unnin á heimili Hjörleifs Kvaran, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Sýran er sögð áður hafa verið notuð til að leysa upp lakk í iðnaði á Íslandi en hafi þótt of hættuleg. Notkun hennar hafi því verið hætt.

DV greindi frá því í byrjun september að verðir í ómerktri Citroën-bifreið skiptust á að gæta íbúðarhúss Rannveigar, að Háhæð í Garðabæ, í kjölfar skemmdarverkanna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.