Knattspyrnumaðurinn Marlon King var í dag dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að nefbrjóta tvítuga konu sem vildi ekkert með hann hafa þegar hann gerðist fjölþreifinn á vinsælum næturklúbbi í London í desember. Hann hefur nú verið rekinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Wigan Athletic sem hann lék með. Stjórnarformaður Wigan Dave Whelan sagði ekki koma til greina að hafa leikmenn innan raða liðsins sem ætti yfir höfði sér átján mánaða fangelsi, það væri einfaldlega ekki liðið.
Marlon King, sem þénaði tæpar fimm milljónir króna á viku hjá Wigan, mun hafa komið upp að konunni á næturklúbbnum Soho Revue í London. King mun hafa gripið í afturenda hennar og hagað sér afar óviðeigandi og lét það ekki stöðva sig að hann er kvæntur þriggja barna faðir.
„Veistu ekki hver ég er? Ég er milljónamæringur! Þú ert mér ekki einu sinni samboðin,“ á King að hafa öskrað á stúlkuna þegar hún hafnaði atlotum hans. Augabragði eftir að hann hafði látið hana hafa það óþvegið lét hann hnefann vaða í andlit hennar með þeim afleiðingum að hún nefbrotnaði, hlaut skurð á vör og glóðurauga.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
