Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurnesjum, telur líklegt að krafist verði áframhaldandi gæsluvarðhalds sjömenninganna. „Við vinnum hörðum höndum og komið er að uppgjörsdegi hjá okkur. Ég vænti þess að við krefjumst framlengingar gagnvart flestum, ef ekki öllum, þeim sem sitja í gæsluvarðhaldi. Mér finnst það líklegt,“ segir Jóhannes Jensson.
Lögreglan á Suðurnesjum telur sig hafa ýmislegt í höndunum og segir flesta þætti rannsóknarinnar farna að skýrast. „Okkur hefur orðið ágengt í rannsókninni á mansali gagnvart þeim sem sitja í gæsluvarðhaldi þó svo tengslin séu mismunandi. Við teljum okkur hafa fast í hendi gagnvart þessum sakborningum,“ segir Jóhannes.
„Við erum með þolanda mansals og síðan hafa komið fram þolendur úr öðrum málum. Við gefum ekkert upp um ungu stúlkuna en hún er að jafna sig jafnt og þétt. Við reynum að vernda hana eins og hægt er.“
Gæsluvarðhald sjömenninganna, fimm Litháa og tveggja Íslendinga, rennur út klukkan 16 í dag.
Mansalsmálið: krefjast framlengingar yfir sjömenningunum
Tengt: Mansalsmál Á Suðurnesjum
- 9. nóvember 2009
Mansalsmálið: Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds - 4. nóvember 2009
Mansalsmálið: Sex menn áfram í gæsluvarðhaldi - 30. október 2009
Mansalsmálið: Allir liggja ennþá undir grun - 30. október 2009
Mansalsmálið: „Hver djöfullinn gengur á?“ - 28. október 2009
Mansalsmálið: „Frábært að fá manninn minn heim.“
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna