ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Mansalsmálið: „Frábært að fá manninn minn heim.“

18:13 › 28. október 2009
Börnunum var tilkynnt að faðir þeirra væri í útlöndum á meðan hann sat í haldi.

Börnunum var tilkynnt að faðir þeirra væri í útlöndum á meðan hann sat í haldi.

„Ég er himinlifandi að fá manninn minn heim, þetta er frábært. Nú get ég sagt börnunum okkar að pabbi sé komin heim frá útlöndum,“ segir tveggja barna móðir sem handtekin var í mansalsmálinu ásamt eiginmanni hennar. Til að vernda börnin þeirra vill hún ekki láta nafns síns getið og tilkynnti börnunum að faðir þeirra væri í útlöndum þann tíma sem hann sat í gæsluvarðhaldi. Eiginmanninum var sleppt nú síðdegis.

Sex af þeim sjömenningum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi þurfa að sitja áfram í haldi. Fimm Litháar með langar glæpaferil í heimalandinu og einn Íslendingur sem grunaður er um mansal, fjársvik, tryggingasvik og íkveikju.

Eiginmaðurinn, sem látinn var laus í dag, var í upphafi grunaður um mansal en síðar beindist rannsókn og gæsluvarðhald lögreglunnar eingöngu að fjársvikum. Hann er nú laus úr haldi lögreglunnar og eiginkonan segir að engin ákæra liggi fyrir. Aðspurð vonast eiginkonan eftir því að málinu sé lokið. „Löggan skutlaði honum bara heim og engin ákæra liggur fyrir. Það er frábært að fá hann heim og nú þurfum við að jafna okkur á þessu öllu saman“, segir hin fegna eiginkona.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.