ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Börnin kæra lögregluna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:35 › 28. október 2009
Harkaleg handtaka. Konan sættir sig ekki við framgöngu lögreglunnar sem handtók hana og eiginmann hennar að börnum þeirra viðstöddum.

Harkaleg handtaka. Konan sættir sig ekki við framgöngu lögreglunnar sem handtók hana og eiginmann hennar að börnum þeirra viðstöddum.

„Þetta er hrikalegt morð á mínu mannorði og ég veit ekkert hvort ég nái að vinna það tilbaka,“ segir móðir fjögurra og níu ára gamalla barna, sem var handtekin í mansalsmálinu svokallaða.

„Ég get bara ekki sætt mig við það. Ég er náttúrlega að stefna embættinu fyrir ólögmæta handtöku og framkvæmd hennar. Að mörgu leyti hefur verið brotið á okkur og framkoman í okkar garð er ömurleg. Börnin mín eru líka komin með lögfræðing og eru að kæra. Þau voru virkilega hrædd, svo hrædd að þau þorðu fyrst ekki að koma aftur heim,“ segir konan sem vill ekki koma fram undir nafni barna sinna vegna.

Handtakan fór fram í viðurvist barnanna tveggja. Hún hefur ákveðið að kæra lögregluna á Suðurnesjum fyrir ólögmæta handtöku. Eiginmaður hennar var einnig handtekinn og situr í gæsluvarðhaldi, ásamt Sigurjóni Halldórssyni. Ragnari Þórarinssyni var sleppt eftir að gæsluvarðhaldið var kært og varðhaldsástæðu gegn manni hennar var breytt úr grunsemdum um mansal yfir í fjársvik. Eiginmaður konunnar rekur bílaverkstæði í Reykjavík og hinir síðarnefndu verktakafyrirtæki.

Meira um málið í DV í dag


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.