ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

„Veistu ekki hver ég er?“ spurði knattspyrnustjarna og nefbraut konu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:14 › 27. október 2009
Marlon King (t.v.) þegar hann lék með Watford. Sakaður um að hafa kýlt stúlku á næturklúbbi.

Marlon King (t.v.) þegar hann lék með Watford. Sakaður um að hafa kýlt stúlku á næturklúbbi.

Réttarhöld eru hafin yfir knattspyrnumanninum Marlon King þar sem honum er gefið að sök að hafa nefbrotið tvítuga konu sem vildi ekkert með hann hafa þegar hann gerðist fjölþreifinn á vinsælum næturklúbbi í London í desember.

Marlon King, sem þénar tæpar fimm milljónir króna á viku hjá Wigan Ahtletic í ensku úrvalsdeildinni, mun hafa komið upp að konunni á næturklúbbnum Soho Revue í London. King mun hafa gripið í afturenda hennar og hagað sér afar óviðeigandi og lét það ekki stöðva sig að hann er kvæntur þriggja barna faðir.

„Veistu ekki hver ég er? Ég er milljónamæringur! Þú ert mér ekki einu sinni samboðin,“ á King að hafa öskrað á stúlkuna þegar hún hafnaði atlotum hans. Augabragði eftir að hann hafði látið hana hafa það óþvegið lét hann hnefann vaða í andlit hennar með þeim afleiðingum að hún nefbrotnaði, hlaut skurð á vör og glóðurauga. Frá þessu greinir Daily Mail í dag.

King neitar sök um kynferðislega áreitni og líkamsárás og heldur því fram að konan hafi farið mannavillt. Það hafi ekki verið hann sem hafi veist að henni.

King, sem er samningsbundinn Wigan Athletic, var lánaður til Hull City á síðustu leiktíð en er nú í láni hjá Middlesbrough.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?