ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Þokast í viðræðum um kjarasamninga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:24 › 27. október 2009
Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambandsins.

Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambandsins.

„Hún hefur lagast. Hlutirnir hafa smám saman verið að skýrast og það eru meiri líkur en minni að hlutirnir gangi upp,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í Kastljósinu í kvöld aðspurður hvernig viðræður ganga á milli Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambandsins um staðfestingu á kjarasamningum.

Ekki er búist við að málin skýrist fyrr en undir miðnætti hvort Samtök atvinnulífsins segja upp kjarasamningi við Alþýðusambandið en þá rennur uppsagnarfresturinn út. Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambandsins, sagði í Kastljósinu að mikilvægast væri fyrir Alþýðusambandið að verja stöðu þeirra tekjulægstu og verja skattleysismörkin. Hann sagði atburðarrásina vera mun skárri núna en hún var fyrr í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.