ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Stím-málið til sérstaks saksóknara

09:00 › 27. október 2009
Stím-málið hjá Glitni verður þriðja málið sinnar tegundar frá viðskiptabönkunum þremur sem ratar inn á borð til sérstaks saksóknara, Ólafs Haukssonar, eftir bankahrunið síðasta haust. Hin tvö eru Imon-málið og mál Al-Thanis.

Stím-málið hjá Glitni verður þriðja málið sinnar tegundar frá viðskiptabönkunum þremur sem ratar inn á borð til sérstaks saksóknara, Ólafs Haukssonar, eftir bankahrunið síðasta haust. Hin tvö eru Imon-málið og mál Al-Thanis.

  • Jakob Valgeir Flosason var stjórnarformaður Stíms. Hann hefur lýst því í yfirlýsingu hvernig hann samþykkti að taka þátt í fjárfestingunni en Glitnir leitaði til þeirra.

    Jakob Valgeir Flosason var stjórnarformaður Stíms. Hann hefur lýst því í yfirlýsingu hvernig hann samþykkti að taka þátt í fjárfestingunni en Glitnir leitaði til þeirra.

Rannsóknin á Stím-málinu er á síðustu metrunum hjá Fjármálaeftirlitinu eftir margra mánaða rannsókn. Málið verður sent til sérstaks saksóknara í nóvember. Stím-hópurinn var settur saman sem þrautalending, eftir að fjárfestar eins og Gnúpur og Samherji höfðu hafnað því að taka þátt. Starfsmaður Glitnis og nú Íslandsbanka, Jóhannes Baldursson, sem kom að Stím-málinu neitar að ræða við DV.

Stím-málið verður sent frá Fjármálaeftirlitinu til sérstaks saksóknara á næstunni, í næsta mánuði nánar tiltekið, samkvæmt heimildum DV. Málið er nú á síðustu metrunum hjá stofnuninni og hafa starfsmenn Fjármálaeftirlitsins náð nokkurn veginn utan um málavexti þess. Dregist hefur að senda málið sökum þess hversu flókið það er og munu starfsmenn Fjármálaeftirlitsins meðal annars hafa haft áhyggjur af sönnunarbyrðinni: að erfitt gæti reynst að sanna að lögbrot hafi átt sér stað, samkvæmt heimildum DV.

Stím-málið gengur út á það að félag með þessu nafni fékk tæplega 20 milljarða króna að láni frá Glitni til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group í nóvember árið 2007. Seljandi bréfanna var Glitnir en um var að ræða rúmlega 4 prósenta hlut í hvoru tilfelli. Veðin fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum í Glitni og FL Group. Glitnir var sjálfur seljandi bréfanna sem Stím keypti og lögðu hluthafarnir einnig fram tæplega 5 milljarða króna eiginfjárframlag vegna kaupanna á bréfunum. Meðal hluthafa Stíms voru útgerðarfeðgarnir úr Bolungarvík Jakob Valgeir Flosason og Flosi Valgeir Jakobsson og var sá fyrrnefndi stjórnarformaður félagsins.

Fjármálaeftirlitið hefur verið með það til rannsóknar hvort markaðsmisnotkun hafi átt sér stað í viðskiptunum og að tilgangur þeirra hafi verið að falsa eftirspurn eftir hlutabréfum í honum en 16,5 milljarðar af upphæðinni voru notaðir til að kaupa hlutabréf í bankanum. Stím-málið þykir líkjast tveimur öðrum sem tengjast hinum stóru viðskiptabönkunum tveimur, Al-Thani-málinu í Kaupþingi og Imon-málinu í Landsbankanum, en bæði tvö hafa verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara í nokkra mánuði.

Nánar um málið í DV í dag


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.