„Sérhagsmunagæska Samtaka atvinnulífsins ríður ekki við einteyming. Höfuðáhersla forkólfanna er að standa vörð um myglað og meingallað kvótakerfi, sem eitt og sér gaf af sér ógeðfelldustu eignatilfærslu og byggðaröskun íslenskrar spillingarsögu,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, á vefsíðu sinni.
Sigmundur segir Samtök atvinnulífsins halda í aðskilnaðarstefnu atvinnulífsins með því að halda í misskiptingu og sérrettindi innan þess. „Stöðugleikasáttmálanum má hæglega fórna. Kvótagróðanum verður ekki skipt úr fyrir einhverja almenna sátt sem alla varðar. Það verður að vernda rétt þeirra fáu fyrir væli þeirra mörgu,“ segir Sigmundur.
Hann segir Samtök atvinnulífsins sýna sitt rétta andlit þegar að þeim er sótt. „Þau mega ekki heyra á það minnst að hreyft sé við sérhagsmunum. Allt tal í þá veru er umsvifalaust afgreitt sem árás á íslenska atvinnulífið eins og það leggur sig. Endurskoðun á einu útjaskaðasta aðalsmannakerfi álfunnar er líkt við landráð. Heyr á endemi. Þetta er sannkallað afturhald. Þetta er alvöru íhald. Og svei mér þá; þetta eru hagsmunasamtök og varðhundar yfirstéttarinnar í landinu sem á helst ekki að borga skatta til jafns við aðra, hvað þá að hún missi áunnið forskot í atvinnuréttindum,“ segir Sigmundur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision